Vel sóttur aðalfundur Búseta var haldinn á Grand hótel 28. maí sl.

Sjö buðu sig fram til setu í aðalstjórn félagsins og einn til varamennsku.

Aðalfundur Búseta var haldinn 28. maí sl. á Grand hótel. Fundurinn var sérstaklega vel sóttur og sátu um 130 þátttakendur fundinn. Fram fóru hefðbundin aðalfundarstörf, farið var yfir ársreikning félagsins og nýbyggingarverkefni við Axlarás kynnt.

Jón Ögmundsson stjórnarformaður var í framboði til endurkjörs og var endurkjörinn. Eitt mótframboð barst en var dregið til baka áður en til fundarins kom.

Stjórnarkonurnar Helga Egla Björnsdóttir og Erna Borgný Einarsdóttir voru í framboði til endurkjörs. Ásamt þeim voru eftirtaldir í framboði til setu sem meðstjórnendur í stjórn Búseta. Ingi Valur Jóhannsson, Kristín Ástgeirsdóttir, Rúnar Einarsson, Sigfríður Björnsdóttir og Sigrún Dögg Kvaran. Eftir kosningar sem fram fóru á fundinum var niðurstaðan sú að Helga Egla Björnsdóttir og Erna Borgný Einarsdóttir voru endurkjörnar. Ragnar Sær Ragnarsson var sjálfkjörinn varastjórnarmaður.

Jón Ögmundsson flutti ávarp stjórnar og fór yfir þróun félagsins. Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri kynnti ársuppgjör Búseta og flutti erindi með viðbótarupplýsingum um fjárhag og stöðu félagsins. Guðfinna J. Guðmundsdóttir lagði fram tillögur, fyrir hönd stjórnar, um uppfærslur á samþykktum Búseta. Þær voru samþykktar. Á meðan talning atkvæða fór fram flutti Erlendur Gíslason lögmaður hjá Logos stutt erindi til að varpa ljósi á stöðu mála í Mjóddinni. Eins og þekkt er var vöruskemma byggð á næstu lóð við hús Búseta sem stendur við Árskóga 7. Skemman og margvísleg áhrif hennar hafa verið til umfjöllunar eins og flestum er kunnugt. Alexander Helgason flutti kynningu um nýbyggingarverkefni Búseta við Axlarás 16-22 í Áslandi 4 í Hafnarfirði.