Vel sóttur aukaaðalfundur Búseta – tillögur stjórnar samþykktar einróma

Niðurstöður umfangsmikillar stefnumótunarvinnu voru kynntar á fundinum

Aukaaðalfundur Búseta var haldinn fimmtudaginn 12. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn fór vel fram og var vel sóttur, en um 40 félagsmenn og aðrir fundargestir tóku þátt. Á fundinum voru kynntar niðurstöður umfangsmikillar stefnumótunarvinnu félagsins auk þess sem tillögur stjórnar að breytingum á samþykktum Búseta voru lagðar fram til afgreiðslu. Tillögurnar hlutu einróma samþykki fundarins.

Ný stefna mótuð með víðtæku samráði

Á fundinum voru kynntar niðurstöður stefnumótunarvinnu sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið KPMG. Við mótun stefnunnar var lögð rík áhersla á víðtækt samráð við hagaðila, m.a. félagsmenn, búseturéttarhafa, stjórn, starfsfólk og ýmsa samstarfsaðila félagsins.

Stefnumótunarvinnan hefur haft það að leiðarljósi að skerpa á framtíðarsýn Búseta, móta áherslur til næstu ára og styrkja enn frekar grundvöll félagsins til framtíðar. Í þeirri vinnu hefur verið horft til þeirra breytinga og áskorana sem einkenna húsnæðismarkaðinn, þarfa félagsmanna og þeirra tækifæra sem felast í áframhaldandi þróun félagsins.

Kynningin á aukaaðalfundinum markaði mikilvægan áfanga í þessari vinnu og lagði grunn að næstu skrefum við innleiðingu stefnunnar í starfsemi félagsins.

Samhljóða samþykki fyrir breytingum á samþykktum

Fjallað var um tillögur stjórnar Búseta að breytingum á samþykktum félagsins. Tillögurnar miðuðu fyrst og fremst að því að styrkja stjórnarhætti Búseta og skapa skýrari og traustari umgjörð um stjórn félagsins til framtíðar. Í tillögunum felst innleiðing á svokallaðri umsagnarnefnd sem hefur það hlutverk að leggja faglegt mat á hæfni, reynslu og bakgrunn frambjóðenda til stjórnar Búseta. Markmiðið er að stuðla að vandaðri og gagnsærri málsmeðferð við stjórnarkjör og tryggja að stjórn félagsins búi yfir þeirri fjölbreyttu þekkingu og reynslu sem nauðsynleg er til að sinna hlutverki sínu með farsælum hætti.

Í breytingunum felast áherslur á faglegt verklag við undirbúning stjórnarkjörs, hæfni og reynslu stjórnarmanna ásamt stöðugleika og samfellu í stjórnarstarfi. Jafnframt er lögð áhersla á að tryggja eðlilega endurnýjun og að skipan stjórnar taki mið af þeim kröfum sem gerðar eru til ábyrgðar og stjórnarhátta öflugs húsnæðissamvinnufélags.

Tillögurnar voru lagðar fram til afgreiðslu á fundinum og voru þær allar samþykktar einróma. Niðurstaðan er ánægjuleg og endurspeglar ríkan stuðning fundarins við þau markmið sem liggja að baki breytingunum.

Á myndinni hér fyrir neðan eru frá vinstri: Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri Búseta, Guðfinna J. Guðmundsdóttir lögmaður, Gísli Tryggvason lögmaður og fundarstjóri, Ásbjörn U. Valsteinsson varastjórnarmaður og fundarritari, Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá KPMG, Eyþór Ívar Jónsson sérfr. í stjórnun og stjórnarháttum og Jón Ögmundsson stjórnarformaður Búseta.

Mikilvægur áfangi í áframhaldandi þróun Búseta

Búseti gegnir mikilvægu hlutverki á íslenskum húsnæðismarkaði. Með auknum umsvifum og fjölbreyttari starfsemi hefur jafnframt orðið sífellt mikilvægara að styrkja innviði félagsins, skýra stefnumarkandi áherslur og tryggja vandaða stjórnarhætti.

Aukaaðalfundurinn markar tímamót í áframhaldandi þróun Búseta. Annars vegar liggur nú fyrir skýrari stefnumarkandi sýn til framtíðar og hins vegar hefur verið stigið mikilvægt skref í að styrkja umgjörð stjórnarstarfs félagsins.

Stjórn þakkar félagsmönnum fyrir góða þátttöku á fundinum, málefnalegar umræður og þann stuðning sem fram kom við tillögur stjórnar. Virk þátttaka félagsmanna er mikilvægur þáttur í starfsemi húsnæðissamvinnufélags og styrkir þann samfélagslega grundvöll sem Búseti byggir á.

Framundan er áframhaldandi vinna við innleiðingu nýrrar stefnu og þróun félagsins með hagsmuni félagsmanna, vandaða þjónustu og öruggt húsnæði að leiðarljósi.

Hér fyrir neðan má finna tillögur stjórnar að breytingum á samþykktum.

Samþykktir Búseta - Breytingartillögur