Creditinfo birti á dögunum lista ársins við hátíðlega athöfn í Hörpu. Viðurkenningin byggir á ítarlegri greiningu á rekstri fyrirtækja og fjárhagslegum niðurstöðum þeirra á undanförnum þremur árum. Aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja standast þær kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja.
Ströng skilyrði um rekstur og fjárhagslegan styrk
Til þess að hljóta viðurkenningu Creditinfo þurfa fyrirtæki að uppfylla fjölþætt skilyrði um rekstur, afkomu og fjárhagsstöðu. Meðal annars þurfa þau að hafa skilað jákvæðri ársniðurstöðu og rekstrarhagnaði þrjú ár í röð, hafa eiginfjárhlutfall að lágmarki 20% og vera í einum af þremur bestu lánshæfisflokkum Creditinfo. Eiginfjárhlutfall Búseta er 42% og eiginfjárhlutfall Leigufélags Búseta 50%.
Jafnframt eru gerðar kröfur um lágmarksrekstrartekjur og eignir, skil ársreikninga og eftir atvikum upplýsingagjöf um sjálfbærni og kynjahlutföll.
Traustur rekstur undirstaða húsnæðisöryggis
Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur í rekstri Búseta og Leigufélags Búseta á undanförnum árum en Búseti og Leigufélag Búseta hafa hlotið viðurkenninguna í yfir fimm ár. Hún endurspeglar fjárhagslegan styrk félaganna og þá langtímahugsun sem einkennir starfsemi þeirra.
Traustur og ábyrgur rekstur er ein af mikilvægustu forsendum þess að Búseti geti sinnt hlutverki sínu, stuðlað að húsnæðisöryggi félagsmanna og byggt upp fjölbreytta búsetukosti til framtíðar.
Það er því sérstakt ánægjuefni að bæði félögin skuli enn á ný vera í hópi Framúrskarandi fyrirtækja landsins. Árangurinn er jafnframt viðurkenning á metnaðarfullu starfi starfsfólks og stjórna félaganna og hvatning til að halda áfram á sömu braut.