Lánamöguleikar

Viðskiptabanki Búseta er Landsbankinn. Hjá bankanum bjóðast sérkjör fyrir félagsmenn þegar fjárfest er í búseturétti.

Upplýsingar um lán

  • Útibú Landsbankans í Borgartúni 33 sér um allt sem viðkemur lánveitingunni
    Sími þar er 410 4000
  • Tengiliðir eru Björk Pálsdóttir, Karen Kristine Pye, Magnús Snær Dagbjartsson, Ósk L. Heimisdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Þórný Jóhannsdóttir
  • Lánið er flokkað sem fasteignalán og er háð lánareglum Landsbankans. Lánið er veitt að undangengnu greiðslumati bankans
  • Lánið getur verið allt að 30% af búseturétti í endursöluíbúðum en allt að 50% í nýbyggingum. Hámarksupphæð láns er tilgreind í auglýsingu
  • Lánstími er allt að 10 ár og miðað er við jafnar greiðslur eða jafnar afborganir
  • Lánið er með breytilegum vöxtum 11,05% óverðtryggt og 3,65% verðtryggt. Vaxtatafla Landsbankans á hverjum tíma er aðgengileg á www.landsbankinn.is
  • Lántökugjald er kr. 59.900,- og er ekki lánað fyrir þeim kostnaði
  • Seðilkostnaður er kr. 635,- fyrir seðilinn heim, skuldfærð pappírslaus greiðsla kostar kr. 140,-
  • Hægt er að borga inn á lánið og greiða það upp hvenær sem er án uppgreiðslugjalds
  • Möguleiki er á því að færa lánið á milli búseturétta en það er alltaf gert upp við flutning úr kerfinu
  • Farið er fram á greiðslumat lántakanda og Búseti áskilur sér rétt á að athuga lánshæfi viðkomandi með tilliti til greiðsluhæfi og sögu
  • Kostnaður vegna greiðslumats er kr. 7.900.- fyrir einstakling og kr. 12.900,- fyrir hjón.
  • Skrifstofan sendir bankanum upplýsingar um úthlutun þína en þú sækir svo sjálf/ur um greiðslumatið á heimasíðu bankans
  • Fyrsti gjalddagi er samkomulagsatriði við bankann
  • Lánareiknivél Landsbankans

Rafrænt greiðslumat

Eftirfarandi gögnum þarf að skila inn til bankans ef ekki er gert rafrænt greiðslumat

  • Ef þú ert ekki með rafræn skilríki þarftu að fá þér slík skilríki eða skila inn neðangreindum gögnum ásamt undirritun á skuldbindingayfirlit:
  • Skattskýrsla síðasta árs staðfest af skattayfirvöldum eða löggildum endurskoðanda
  • Síðasta álagningarseðil skattstjóra
  • Útprentun frá innheimtumanni Ríkissjóðs um skuldastöðu, fæst hjá Tollstjóranum í Reykjavík og sýslumönnum
  • Staðgreiðslurskrá og launaseðlar/lífeyrisbætur síðustu 6 mánaða
  • Afrit af greiðsluseðlum allra lána s.s. skuldabréfa, bílalána, og LÍN
  • Yfirlit yfir aðrar skuldir svo sem raðgreiðslur, fjölgreiðslur og yfirdráttarheimildir
  • Undirrituð beiðni um lánayfirlit (bankinn útvegar)