Vanur smiður óskast

Búseti leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum smiði.

Búseti leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum smiði.

Viðkomandi verður að geta unnið sjálfstætt og tekið ákvarðanir á verkstað um leið og viðmiðum Búseta er fylgt. Til greina kemur að ráða aðila með annars konar iðnmenntun. Búseti er húsnæðissamvinnufélag sem leggur upp úr góðu viðhaldi þeirra u.þ.b. 1.000 fasteigna sem félagið rekur. Verkefnin eru afar fjölbreytt og góður starfsandi ríkir. Viðkomandi mun tilheyra fjögurra manna teymi sem saman leitar hagkvæmra leiða hvað varðar viðhald og endurbætur. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og langtímahugsun þegar kemur að viðhaldi fasteigna Búseta. Um er að ræða 100% framtíðarstarf á höfuðborgarsvæðinu hjá rótgrónu og traustu félagi.

Áhugasamir sendi tölvupóst með ferilskrá til Einars Guðmannssonar forstöðumanns viðhaldsdeildar. Tölvupóstur, einar@buseti.is. Umsóknarfrestur er til og með 23. september nk.