Hvað viltu vita um Búseta?
Búseti er spennandi kostur fyrir fjölskyldur og einstaklinga á öllum aldri. Fasteignirnar eru af fjölbreyttum stærðum og gerðum á höfuðborgarsvæðinu og eru um 1.400 talsins.
Fyrirkomulagið er ekki flókið en þó er mikilvægt að kynna sér vel hvað það felur í sér.
Hér er að finna svörin við þeim spurningum sem kunna að vakna.
Félagsaðild í Búseta er öllum opin, óháð aldri eða búsetu. Með því að gerast félagsmaður í Búseta átt þú möguleika á fjölbreyttu úrvali íbúða á höfuðborgarsvæðinu.
Allir félagsmenn 18 ára og eldri geta boðið í búseturétti. Lausir búseturéttir eru auglýstir fyrsta virka þriðjudag hvers mánaðar á vef Búseta undir íbúðir. Með því að smella á tengilinn getur þú skráð þig á póstlista og óskað eftir að fá upplýsingar um lausar íbúðir. Ekki þarf að að fara í greiðslumat til að kaupa búseturétt.
Nánar um lánakjör vegna kaupa á búseturétti
Þegar að umsóknarfrestur er runninn út, þá tekur starfsfólk Búseta umsóknirnar til úrvinnslu og við það sjást þær ekki lengur á „Mínum síðum“. Daginn eftir kl 10.00 birtist úthlutunarlistinn á heimasíðu Búseta og þá getur þú séð hvort og þá hvaða íbúð þú fékkst úthlutað.
Búseturéttarhafar greiða mánaðarlegt búsetugjald sem samanstendur af fjármögnun íbúðar og rekstrarkostnað.
Nánar um Greiðslur og framtal, vaxtabætur, íbúðir með tekjumarki og ráðstöfun séreignarsparnaðar.
Í húsum Búseta eru starfrækt húsfélög og eru þau kölluð búsetufélög. Búsetufélögin kjósa sér stjórn, setja sér reglur og bera ábyrgð á rekstri félagins. Helstu verkefni snúa að umsjón með sameign, svo sem stigahúsi, lóð, bílaplani o.s.frv.
Eitt af markmiðum Búseta er að sinna vel viðhaldi íbúða sinna og sýna fyrirhyggju. Í stórum dráttum skiptist viðhaldsábyrgð í þrennt:
Búseti sér um skyldutryggingar húsanna, þ.e. bruna- og húseigendatryggingar. Þær eru hjá TM. Íbúar sjá sjálfir um heimilis- og/eða innbústryggingar.
Ef tjón verður er mikilvægt að bregðast strax við og tilkynna það TM í síma 515-2000 eða 800-6700. Einnig skal hafa samband við skrifstofu.
Nánar um tjón og tryggingar
Búseturétthafa er óheimilt að framselja búseturétt sinn eða framleigja án skriflegs samþykkis stjórnar Búseta. Samkvæmt 16. grein samþykkta Búseta er framleiga ekki heimiluð nema búseturétthafi hafi brýna þörf fyrir hana, svo sem vegna tímabundins starfs, náms eða að ekki hafi tekist að selja búseturétt. Opna samþykktir Búseta
Það er óheimilt að leigja út íbúðir í gegnum Airbnb eða sambærilegar skammtímaleiguþjónustur. Slík leiga telst brot á búsetusamningi sem undirritaður er samhliða kaupsamningi þegar félagsmaður öðlast búseturétt.
Húsnæðissamvinnufélög eins og Búseti eru í eigu allra félagsmanna og fela í sér samlegð, samvinnu og samtryggingu. Tilgangur félagsins er að tryggja félagsmönnum öruggt húsnæði með langtímahugsun að leiðarljósi en ekki fyrir einstaklinga sem vilja hagnast á útleigu. Samkvæmt 1.2. grein búsetusamnings skal húsnæði sem keypt er með búseturétti eingöngu nýtt sem íbúðarhúsnæði og ekki til atvinnustarfsemi. Skammtímaleiga í atvinnuskyni, t.d. í gegnum Airbnb, fellur ekki undir þann notkunarflokk og brýtur því gegn ákvæðum samningsins.
Einnig kveður 8. grein búsetusamnings skýrt á um að framleiga íbúðar sé óheimil, en hægt sé að fá undanþágu með skriflegu samþykki Búseta og þá einungis ef búseturéttarhafi hefur brýna þörf, svo sem vegna náms eða tímabundins starfs annars staðar. Regluleg útleiga, hvort sem hún er í atvinnuskyni eða ekki, án slíks samþykkis, er því óheimil.
Það er þó vert að taka fram að heimilt er að nýta íbúðir Búseta til svokallaðra íbúðarskipta (home exchange), þar sem fjölskylda dvelur í íbúð annars heimilis meðan eigendur hennar dvelja í íbúð félagsmanns. Slík skiptidvöl telst ekki atvinnustarfsemi, er yfirleitt stutt og hluti af fríi, og fellur því ekki undir framleigu í skilningi samningsins.
Búseti hvetur félagsmenn til að kynna sér vel ákvæði búsetusamnings og hafa samband við starfsfólk Búseta ef vafi leikur á réttindum eða skyldum í tengslum við notkun íbúðar.
Það er heimilt er að nýta íbúðir Búseta til íbúðarskipta (home exchange), þar sem fjölskylda dvelur í íbúð annars heimilis meðan eigendur hennar dvelja í íbúð félagsmanns. Aftur á móti er óheimilt að leigja út íbúðir í gegnum Airbnb eða sambærilegar skammtímaleiguþjónustur. Slík leiga telst brot á búsetusamningi sem undirritaður er samhliða kaupsamningi þegar félagsmaður öðlast búseturétt.
Búsetusamningur er óuppsegjanlegur af hálfu félagsins. En óski búseturéttarhafi eftir að selja búseturétt sinn þá hefur hann samband við skrifstofu Búseta sem annast söluna.
Búseturéttur erfist skv. 19. gr. laga um húsnæðissamvinnufélög og 16. gr. samþykkta Búseta. Andlát búseturéttarhafa þarf alltaf að tilkynna til skrifstofu Búseta eins fljótt og auðið er.
Tveir möguleikar eru í stöðunni fyrir erfingja, annars vegar að setja réttinn í söluferli og hins vegar taka hann yfir og búa í íbúðinni.
Reglur um dýrahald taka mið af 33. gr. laga um fjöleignarhús. Þegar um er að ræða íbúa sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang þá þarf samþykki 2/3 hluta íbúa.
Undantekning er í húsum Búseta við Einholt og Þverholt þar sem í upphafi var ákveðið að dýrahald væri bannað.
Bóka þarf fund á skrifstofu til að ganga frá eigendaskiptum vegna skilnaðar eða sambúðarslita. Aðilar máls geta komið saman eða í sitthvoru lagi